Færsluflokkur: Bloggar
5.8.2010 | 10:20
Hvað vil ég verða þegar ég er orðin stór
Ég er orðin 35 ára gömul með 4 börn, 1 mann, 1 hús, 2 bíla og 1 hund. Ég er eiginlega komin með allan pakkann sem gert er ráð fyrir að maður sé kominn með á þessum aldri. En ég get ekki fundið út hvað ég vil verða þegar ég er orðin stór.
Á sínum tíma ráfaði ég í KHÍ, sem er mér en óskiljanlegt þar sem mér leiðast börn. Því næst tók ég 1 ár í stærðfræði þar sem ég hélt að unglingar væru skemmtilegri ef þeir væru komnir í framhaldsskóla. Eftir þá ákvörðun ákvað ég að verða rík og fór í kerfisfræði í 1 ár, en komst að því að þá yrði ég eins og bifvélavirki, ef tölva bilaði einhversstaðar þá hélt fólk að mér þætti gaman að laga þær. Eins og ég hefði einhvern áhuga á veikum tölvum.
Einnig komst ég að því að mér leiðast tölvur jafn mikið og börn svo eiginlega var jafn undarlegt að ég fór í tölvunarfræði eins og í KHÍ á sínum tíma. Ég vinn að vísu í hugbúnaðarfyrirtæki í dag og líkar mjög vel í því starfi, svo einhvern veginn rambaði ég í rétt fyrirtæki.
Samt sem áður get ég engan veginn fundið út hvað ég vil verða þegar ég er orðin stór, svo ég held bara áfram að stækka þangað til ég veit hvað mig langar til að verða.
Bloggar | Breytt 20.1.2014 kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2010 | 13:12
Fædd í vitlausum líkama
Ég fór í skóbúð í dag og mátaði sko með 8 cm háum hælum, mér fannst ég loksins vera búin að finna sjálfan mig.
Ég er sjálf ekki nema 170 cm á hæð en ég stend alltaf í þeirri trú að ég sé 178 cm. Ég á vinkonur og systur sem eru hátt í 180 cm á hæð og ég upplifi mig alltaf sem jafn stórar þeim, ég verð alltaf svekkt þegar ég sé okkur standa hlið við hlið við spegil og ég sé það svart á hvítu að ég er bara pínu peð.
Einnig skil ég ekki afhverju Jói þarf alltaf að lyfta upp sturtuhausnum þegar hann fer í sturtu og skilur hann þannig eftir, ég veit ekki alveg hvort hann sé að minna mig á hvað ég sé lítil eða hvort hann trúi því virkilega ða hann þurfi að hækka hausinn, við hljótum að geta notað sama hæðarstatus fyrir þennan bannsetta sturtuhaus.
Ég var að velta því fyrir mér hvort ég gæti farið í svona hæðarleiðréttingu, líkt og fólk er núna að fara í svona kynleiðréttingu og ætli sú aðgerð væri þá ekki styrkt af ríkinu eins og hin aðgerðina. Mér líður allavega eins og það sé ekki allt eins og það á að vera þegar ég stend við hlið hávöxnu vinkvenna minna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2010 | 11:49
Að vera mamma
Ég á 4 börn, sumum finnst það ekki mikið, en mér finnst það heill hellingur. Ég var að velta því fyrir mér um daginn hvað hefði gerst. Ég horfði á mynd um karlmann í tilvistarkreppu, hann var að fara að eiga sitt fyrsta barn og fannst það eitthvað ógnvekjandi og hann endaði með að halda framhjá kærstunni sinni. Hann sá að sjálfsögðu eftir öllu saman og vildi eiga óléttu kærustuna áfram, þetta var náttúrulega bíómynd.
En hann hefur greinilega vera mun þroskaðri en ég (fyrir utan þetta með framhjáldið), ég vissi ekkert útí hvað ég var að fara, ekki með 1. barn, ekki 2. barn, ekki 3. barn og ekki 4. barn, ég fattaði ekki þetta með 20 ára ábyrgðina. Ég fékk engar leiðbeiningar með óléttunni. Allt snerist bara um að láta sér líða vel á meðgöngu og reyna að eiga eðlilega fæðingu. Eins og það væri stærsta vandamálið. Ég hef sjaldan séð myndir af konum sem eru í tilvistarkreppu. Ef svo er, þá eru þær alkahólistar og pillusjúklingur ekki bara það að þær vilji verða helgarmömmur.
Ég fór í helgarferð um daginn og heimsótti vinkonu mína á Neskaupstað, mér fannst ein helgi vera of stutt, ég hefði viljað hafa a.m.k. viku. Núna finnst mér að ég verði að segja frá því að börnin mín séu yndisleg og mér þyki vænt um þau og bla, bla, bla.
En ég held að ég þurfi ekki að segja það, allir sem eiga nokkur börn skilja þessa tilfinningu þegar lífið hjá manni er orðinn þvottur, þvottur, svæfa, baða, hátta, klæða, elda, borða, ganga frá, stilla til friðar, hlusta á lestur, þvo og fleira þess háttar og maður skilur ekki afhverju maður er lentur í þessari stöðu. Hvað gerðist eiginlega og hvenær koma þessar stundir sem það átti að vera gefandi að eiga börn. Ég bíð eftir að börnin mín fari að heiman og komi í stuttar heimsóknir með ömmubörnin og yngsta barnið mitt er ekki einu sinni orðið 3 ára.
Ég fór í vinnuna um daginn, ég varð hissa að enginn vinnufélaganna minna sagði mamma við mig. En það var mjög gott og mánudagar eru þar af leiðandi uppáhaldsdagar vikunnar hjá mér þessi árin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2010 | 15:42
Í vinnunni um hásumar
"Full frískur öryrki óskar eftir svartri vinnu"
Sá þetta einhvern tímann á netinu fyrir nokkrum árum síðan, held það hafi verið árið 2007.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2010 | 13:47
Eldað í vinnunni
Eldaði sjávarrétta súpu í vinnunni, borðaði of mikið að brauði með en súpan var góð.
Enginn sykur í dag, en of mikið af hveiti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2010 | 13:17
Fyrsta færslan árið 2010
1. dagur í fráhaldið frá sykri. Byrjaði samt ekki vel á því að fá mér twix í morgunmat, svo líklega telst dagurinn á morgun vera fyrsti dagurinn. Enda hljómar 15. júní mun betur en 14. júní
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2009 | 14:50
Ég fór í rækina í hádeginu í dag
Sá fullt af myndarlegum mönnum og konum, flestir voru þó of heilsuhraustir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.6.2008 | 15:21
Svakalega er leiðinlegt að blogga...
Sem sést á hversu ódugleg ég er að setja inn bloggfærslur, er byrjuð á danska aftur. Það er þokkalega erfitt, verð samt að halda áfram, ætla að vera búin að ná 10 kg. næsta mánudag.
Nenni ekki að blogga meira, en eins og Bubbi myndi orða það, í tilefni á afmælisdegi kóngsins:
Jói, ég ellsshhhhka þig!!
Takk fyrir commentið Hjördís, það er styttra síðan þú kíktir hérna inn heldur en ég og ég gat ekki einu sinni kommentað á færsluna, fékk einhverja meldingu um að tíminn væri liðinn sem væri leyfilegt að commenta á. Ætla að breyta því.... í 100 daga
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2008 | 23:08
Mæling í dag 15,4 kg. farin
Komum úr mælingu og erum 15,4 kg. léttari en fyrir tveimur mánuðum.
Jói búinn að missa 7,7 kg
Sigrún búin að missa 7,7 kg
Samtals: 15,4 kg
44,6 kg. eftir í staðinn fyrir 60 kg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.3.2008 | 10:23
03.03.2008 Vigtun - 7,5 farin
Vigtun í gær, gekk bara ágætlega hjá okkur báðum.
Ég með 1,1 kg, samtals 7,5
Jói með 0,5 kg. samtals 6,7
14,2 samtals, 45,8 eftir
Gengur ótrúlega vel hjá okkur þrátt fyrir að við erum ekki nógu dugleg að skrifa matardagbók. En við ætlum að taka okkur á því, ég held það sé nauðsynlegt að vera í fullu prógrammi í þessu fyrstu mánuðina, eins og máltækið segir,
Allt hálfkák reyndist okkur gagnslaust.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigrún Þorsteinsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar