Færsluflokkur: Bloggar

25. febrúar og 12,6 kíló farin til samans

Jæja, þá mættum við í vigtunina í dag og ca. einn og hálfur mánuður síðan við hjónin byrjuðum að japla á danska fæðinu.

Jói kom með svaka vigtun, búinn að missa hátt í 2 kíló síðan fyrir viku síðan og er búinn að missa þá 6,2 kg. í það heila. Gefum Jóa klapp fyrir það.

Eg var búin að léttast um 0,4 kg sem þýðir 6,4 kg. frá upphafi. Samanlagt erum við þá búin að missa 12,6 kg og erum virkilega að vonast til þess að ná 15 kg eftir næstu vigtun.

Bless í bili, sjáumst að viku liðinni.

Sigrún


2. mæling

Þá er ég búin að fá Jóa til að mæla mig í annað skiptið, þegar 5 kíló eru farin. Sumt leit aðeins betur út og annað ekki.

 Upphandleggur: 36cm   +1,5cm

Brjóst: 106cm    -4cm

Mitti: 91cm  -3cm

Magi: 107 cm  -1 cm

Mjaðmir: 113 cm  -2cm

Rass: 122 cm   0 cm

Læri: 72,5cm   - 4cm

Kálfar: 43,5cm   +1,5cm

í það heila eru þetta -11 cm eftir 5 kíló


Vigtun 11. febrúar

Jæja, þetta er búin að vera ferlega léleg vika og ég ætlaði virkilega ekki að koma mér af stað í mælinguna. Ég er ekki búin að fara eftir prógrammi og búin að borða eitthvað smá af sykri og kolvetni sem ég hefði ekki átt að borða. En mamma rak mig af stað í vigtunina og þrátt fyrir þetta svindl voru farin 0,2 kg, og það þýðir þá að það eru farin slétt 5,0 kg síðan í upphafi Wizard

þá eru bara eftir ca. 23 kíló, en þetta er allavega allt í áttina og síðan er það ræktin í dag.

Kveðja

Sigrún


3. vigtun - 28. janúar 2008

Jæja, þá er 3 vigtun afstaðin og var frekar mikið slöpp. Enda var ég ekki að standa mig í síðustu viku og sérstaklega ekki kvöldi fyrir vigtunina, gleypti í mig hrísköku frá dóttur minni. Veit ekki alveg hvað ég var að hugsa eða hvort ég hafi nokkuð verið að hugsa yfirleitt.

En jæja, við fórum í vigtunina og það voru bara liðnir 5 dagar frá síðustu vigtun, nú erum við nefnilega komin í vigtun á Selfossi næstu 9 vikurnar.

 En ég missti 0,1 kg Frown og jói 0,6 Smile

 Þetta gerir samanlagt 3,3+4,6 = 7,9 kg


Matarræði og fleira sem þjakar sálu mína

Ég ætla að halda áfram að blogga, fyrst ég á þessa bloggsíðu. Var að spá í að stofna nýja bloggsíðu þegar ég mundi eftir þessari mjög svo lítið notuðu bloggsíðu.

Ég var að lesa blogg hjá gamla kennaranum hans Þorsteins. Hún er að blogga um matarræðið sitt og aðhald og þá datt mér þessi snilldarhugmynd í hug að vera með matarjátningar á netinu.

Þessi matarást/fíkn mín er farin að valda mér miklu hugarangri og mér leiðist að vera í þessu stjórnleysi í mat og hugsunum um mat, mat, mat, mat. Og eftir allar þessar hugsanir og langanir þá er ég að drepast úr samviskubiti yfir matarneyslunni eða hugsununum.

En játningarnar í dag, fékk mér bolognese í hádeginu og tvo draumsbita í eftirrétt. Þessir bitar voru samt svo stórir að ég held að mér sé alveg óhætt að segja að ég borðaði lítið stykki af draum í dag. Önnur freisting er ekki búin að vera hingað til, en ég er á leið í mat til mömmu og veit að þar verður nóg af freistingum sem ég kem örugglega til með að láta undan. Ég stend mig vonandi betur á morgun.

 


Blogg númmer 2

Þá er það blogg færsla númmer 2.

Ástæða fyrir bloggi númmer 2 er ekki sú að ég hafi svona mikið að segja. Ég bara nenni ekki að vinna eins og er, nenni ekki að lesa aðrar bloggsíður en get ekki hætt í vinnunni fyrr en seinna í dag. Annars er ég búin að fá hundleið á bloggsíðum landsins. Það er voðalega lítið að finna þar annað en ómálefnalegar umræður um klám, feminista og óáreiðanleika skoðannakannanna svona rétt fyrir kosningar. Þetta þref er allt saman óttalega leiðinlegt og innihaldslaust og maður les ekkert útúr þessu annað en sjálflægni mannfólksins og ótta við hið ókunna. Þetta er eiginlega bara orðið eins og einhver skrípaleikur þar sem allir keppast við að sýna hversu barnalegir þeir geta verið. Það er ekki nema von að almenningur treysti ekki alþingi ef ætlast er til að umræðurnar séu á því plani sem þær eru á blogginu. Það hefði átt að spyrja hvort fólk skyldi alþingi, frekar en hvort fólk treysti alþingi.

 


Fyrsta og líklega síðasta bloggfærslan

Þá er ég komin með enn eina bloggsíðuna. Ég geri ekki ráð fyrir mörgum færslum á þessari síðu, jafnvel gæti þetta orðið síðasta færslan, en maður veit svo sem aldrei. Ástæðan fyrir því að þessi síða varð til er sú að mig langaði til að commenta á eina bloggsíðu á netinu.

Læt þetta duga í bili.

Kveðja

Sigrún


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Um bloggið

Sigrún Þorsteinsdóttir

Höfundur

Sigrún
Sigrún

Blogg, blogg, blogg

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband