Færsluflokkur: Bloggar

Óheiðarleiki

Óheiðarleiki borgar sig aldrei, ein lygi leiðir af sér 7 lygir stóð einhversstaðar. Mér líður hræðilega illa.

Fokking fokk

Ég skil ekki mótmælendur í dag, ég efast um að nokkur aðili sem er að mótmæla sé að mótmæla sama hlutnum. Líklega eru þetta fokking fokk mótmæli, allavega virðist þjóðin ekki vera sammála í neinu máli öðru en að vera á móti.

Ég hélt að það væri svona eignaréttur vinstrimanna og "kommúnista" að vera á móti. Ætli allir Íslendingar séu þá núna orðnir vinstrisinnaðir afturhaldsseggir. Það er allavega komið í ljós í hvernig samfélagði við búum þegar allir eru á móti. Ekki á móti einhverju ákveðnu bara á móti öllu og sérstaklega þeim sem eiga pening. Sá tími er liðin að allir vildu vera "vinir" þeirra sem áttu pening, það var svona hægrisinnað samfélag og kallað góðæri.

Nú ríkir vinstri stjórn og þá vilja allir vera á móti og vondi kallinn eru allir þeir sem gætu hugsanlega átt pening.

Ég held að þjóðin sé að missa sig í eitthvað fokking fokk og ef ég flyst frá þessu landi þá er það til að losna við þráhyggjuna í góðærissamfélagið aftur en ekki útaf fokking ríkisstjórninni.


Tom Cruise

Ég horfði á svo leiðinlega mynd með Tom Cruise um daginn. Hún var eiginlega svo leiðinleg að ég hef bara ekkert um hana að segja.

Hænan og eggið

Mig minnir að ég hafi einhvern tímann lesið að búið væri að sanna að annað hvort kæmi á undan hinu. Mér finnst það eiginlega ekki skipta neinu máli hvort hafi verið á undan. En svakalega getur verið erfitt að átta sig á orsök og afleiðingu. Mitt hjónaband gengur líkelga eins og öll önnur hjónabönd, stundum gengur vel og stundum gengur illa. Ég held að enginn geti skapað hið fullkomna hjónaband en það er alveg merkilegt hvað það er til mikið af fólki sem heldur að hið fullkomna hjónaband sé til.

En hvað um það, við hjónin komumst að því að ef allt leikur í lyndi hjá okkur þá gangi það eiginlega vel á öllum sviðum, innan allra veggja heimilisins og utan þess. En eitt gengur illa þá gengur fer yfirleitt að halla undan fæti á öðrum sviðum hjónalífsins líka og við getum ekki sæst á hvað sé orsök og afleiðing.

Þegar við ætlum að taka á vandanum þá vill hann meina að best sé að byrja á einum stað og mjög meðvitaður um hvaða staður það sé. Ég aftur á móti ætla að byrja á mörgum stöðum í einu, eins og til dæmis á uppvaskinu, búðarferðunum, þvottahúsinu, börnunum, það er af svo mörgu að taka hjá mér svo kannski hentar hans skipulag eitthvað betur.

En það sem mig langar til að komast til botns í, er hvað er orsökin og hvað sé afleiðingin. Líklega fer ég nú samt með þessar vangaveltur í gröfina.


Borgarstjórinn

Fyrst þegar Jón Gnarr stofnaði besta flokkinn, þá fannst mér það alveg fráleit hugmynd og ég er en þeirrar skoðunar en ég fýla hann sem borgarstjóra og ég vona að hann svíki sem mest af kosningaloforðunum. En það er frábært að hafa einhvern borgarstjóra sem er ekki eins leiðinlegur og allir hinir sem hafa verið starfandi. Það er eins og það megi allir aðrir en stjórnmálamennirnir hlæja að stjórnmálum landsins og aumingja pólitíkusarnir rembast við að láta taka sig alvarlega og almenningur hlær.

Aðdáandi

Ég á mér aðdáanda, hann stór, feitur og afspyrnuleiðinlegur. Hann er tengdur einni vinkonu minni og á konu.

Það er alltaf gaman að eiga aðdáendur og fá einhverskonar viðurkenningu á eigin ágæti, sama þótt maður viti að viðkomandi aðili segi örugglega það sama við þó nokkrar aðrar konur.  En þegar maður má ekki birtast á vefmiðlinum facebook.com án þess að hann sé búinn að segja "hæ hæ" eftir innan við mínútu þá getur það orðið þreytandi.

Það furðulegasta er samt að ég lét vinkonu mína hafa afrit af samtali sem ég átti við hann, samtal sem hún fór svo með til vinkonu sinnar sem vinkonan fór svo með beint til hans. Ég vissi allan tímann hver yrði endastöðin fyrir þetta umrædda samtal og var bara alveg sátt við það og hélt hann myndi nú hætta að stalka mig á netinu. Það leið svona vika þangað til hann vildi ræða við mig og spyrja hvort ég væri fúl útí hann. Ég sagðist nú ekkert vera það en mér þætti ekki viðeigandi að hann væri stanslaust að daðra við mig (m.ö.o "VILTU HÆTTA AÐ VERA ALLTAF AÐ REYNA VIÐ MIG") ég hélt þetta væri einhvern veginn augljóst. En sumir eru augljóslega mun tregari en aðrir.

Ég er svo sem ekki í vandræðum með að fjarlægja hann af vinalistanum. Ég hélt bara að það væri nóg fyrir hann að ég kom útprentun af samtalinu okkar til konunnar hans. Og ég var eiginlega búin að láta hann vita að mér væri ekki treystandi og vildi að hann léti mig í friði. Líklega best að eyða honum.


Fasteignasalar

Að öllu jöfnu þá er ég mjög umburðarlynd og æðrulaus manneskja. Ég læt fátt fara í taugarnar á mér og ef það gerir það, þá get ég yfirleitt haft gaman af því í leiðinni.

En ég næ ekki umburðarlyndinu fyrir fasteignasölum. Ég held að fasteignasalar hljóti að vera umorðun á setningunni "þjófnaður þar sem fórnarlambið veit að það er rænt en getur ekkert við því gert" þar sem fasteignasalar eru heldur ekki vitlausir og hafa því náð að búa til nógu flóknar reglur svo hinn venjulegi almúgi getur ekkert sagt þegar fasteignasalinn rukkar hann um nokkrar milljónir fyrir að selja eignina sína.

Hvernig er hægt að réttlæta það að sala á eign kosti frá 700.000 og uppí nokkrar milljónir og hver er eiginlega munurinn á því fyrir fasteignasala að selja eign á 10 milljónir og svo 100 milljónir. Hvers vegna á fasteignasalinn skilið að fá 10 sinnum hærri laun fyrir að selja dýrari eignina.

Ætli það sé notaður flottari pappír fyrir dýrari eigninga, eða mæta þeir í dýrari fatnaði þegar verið er að skrifa undir kaupsamning fyrir 100 milljónir króna.


Samkynhneigð

Ég var að velta fyrir mér um daginn, ef þú ert samkynhneigður, giftist á Íslandi og ferð aftur til þíns heimalands þar sem hjónabönd samkynhneigðra er ekki viðurkennt, ertu þá bara giftur í sumum löndum og öðrum ekki?

Börn og aðrir minna þroskaðir menn

Núna er barnalandstímabilinu mínu endanlega lokið, ég seldi eldhúsborðið mitt og ætla að halda því sem ég keypti (sem er samt ekki draumaborðið) en þar sem minn tími er liðinn þá verð ég bara að sætta mig við "nýja" borðið sem var keypt á kolaporti internetsins.

En hvað um það, það sem mér fannst merkilegast af öllu var eiginlega maðurinn sem keypti það af mér. Hann var nefnilega að leita að borði fyrir 8 MANNS. Hvað er eiginlega í gangi! Hver ákveður það að hann þurfi að gefa jóla og afmælisgjafir til 8 afkomanda og síðar meir þeirra afkomanda. Saman áttu þau hjónin 3 úr fyrra bandi (1 sem bjó heima og 2 helgarbörn) og svo komu 3 börn sem þau áttu sameiginlega fædd árin 2008, 2009 og 2010. 3 börn á 3 árum, þetta er geðveiki.

Hann er ekki sá eini sem ég þekki, það er hellingur af fólki sem er að eiga svona mikið af börnum, saman og í sundur, lausaleik og í hjónabandi. Ég held við verðum að fyrirgefa þessum körlum okkar þegar einn og einn afmælisdagur dettur úr minninu í framtíðinni.


Að kaupa og selja á barnalandi.

Ég er búin að festast inná barnaland að undanförnu af einhverri meðvirkni, einhver sagði mér að það væri hægt að finna allt á barnalandi og mig vantaði hjól fyrir elstu stelpuna mína.

Það var engum ofsögum sagt að það er hægt að finna allt á barnalandi. Þetta er eiginlega eins og að vera kominn í kolaport internetsins, allskonar drasl sem hægt er að finna þarna.

Mér finnst mjög leiðinlegt í búðum og fer helst ekki hvorki til að skoða né versla en samt verð ég að viðurkenna að það var alltaf viss sjarmi að fara í Kolaportið, það var svona sérstök upplifun að fara þarna inn, þetta var svona útlanda stemning þar sem maður þekkti svona markaði frá útlöndum og Kolaportið minnir á einhvern útimarkað í útlöndum.

Mað barnalandi var öllum sjarma kippt út, það er einfaldlega ekkert eftir sem getur hugsanlega verið sjarmerandi eða skemmtilegt við að versla gamla hluti frá gömlu fólki.

Held ég sé komin í frí frá sölusíðum internetsins og nýti tíma minn í eitthvað gagnlegra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigrún Þorsteinsdóttir

Höfundur

Sigrún
Sigrún

Blogg, blogg, blogg

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband