30.7.2007 | 15:45
Matarræði og fleira sem þjakar sálu mína
Ég ætla að halda áfram að blogga, fyrst ég á þessa bloggsíðu. Var að spá í að stofna nýja bloggsíðu þegar ég mundi eftir þessari mjög svo lítið notuðu bloggsíðu.
Ég var að lesa blogg hjá gamla kennaranum hans Þorsteins. Hún er að blogga um matarræðið sitt og aðhald og þá datt mér þessi snilldarhugmynd í hug að vera með matarjátningar á netinu.
Þessi matarást/fíkn mín er farin að valda mér miklu hugarangri og mér leiðist að vera í þessu stjórnleysi í mat og hugsunum um mat, mat, mat, mat. Og eftir allar þessar hugsanir og langanir þá er ég að drepast úr samviskubiti yfir matarneyslunni eða hugsununum.
En játningarnar í dag, fékk mér bolognese í hádeginu og tvo draumsbita í eftirrétt. Þessir bitar voru samt svo stórir að ég held að mér sé alveg óhætt að segja að ég borðaði lítið stykki af draum í dag. Önnur freisting er ekki búin að vera hingað til, en ég er á leið í mat til mömmu og veit að þar verður nóg af freistingum sem ég kem örugglega til með að láta undan. Ég stend mig vonandi betur á morgun.
Um bloggið
Sigrún Þorsteinsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.