Að drukkna í djúpulauginni og geta ekki lært að synda

Þegar systir mín var lítil þá kenndi ég henni að synda með því að henda henni út í djúpu laugina og segja henni að synda að landi, fyrst um sinn þá þurfti ég alltaf að ná í hana, en svo náði hún loksins tökum á þessu og synti að bakkanum. Ég held að þetta sé mitt karma og það versta er, er að ég man ekkert eftir þessari sundkennslu, ég hef þessar heimilidir beint frá henni og hennar hræðilegu lífsreynslu í sambandi við dúpu laugina.

En þessa dagana þá er ég í miðri djúpu lauginni og rétt held mér á floti með hundasundi, heimilið mitt er fullt af börnum, heimalærdómi, þvotti, uppeldi, búðarferðum, eldamennsku, eiginmanni og ketti og ég kann ekki á nokkurn hátt að synda í þessu öllu og rétt næ að halda mér á floti í miðri lauginni. Ég er algjörlega búin að týna sjálfri mér og búin að gleyma öllum sundtökum sem ég lærði á sínum tíma.

Ég er búin að koma mér í einhverjar aðstæður sem ég ræð ekki við og mig langar bara til að systir mín komi og nái í mig og kenni mér að synda uppá nýtt. Nema það, að það er alls ekki henni að kenna að ég sé í djúpu lauginni og því þarf hún alls ekkert að ná í mig.

Ég hringdi í vinkonu mína í daginn sem skyldi við manninn sinn fyrir 4 árum síðan og spurði hvort það væri möguleiki að hún hefði skilið bara til að fá pabbahelgar. Hún vildi ekki meina að það væri þess vegna, en ég held hún vilji bara ekki viðurkenna það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu, varst þú ekki að æfa sund í gamladaga og að keppa á mótum meira að segja?

Jói (IP-tala skráð) 28.10.2010 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigrún Þorsteinsdóttir

Höfundur

Sigrún
Sigrún

Blogg, blogg, blogg

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband