20.12.2011 | 16:02
Krabbamein
Ég er komin með tvöfaldan háls. Einhver benti mér á að líklega væri þetta ofvaxinn skjaldkirtill. Ég las mér til um svona skjaldkirtils mál og komst að því himinlifandi að ofvirkir eða vanvirkir skjaldkirtlar gætu valdið taugaspennu og óróleika ásamt mikilli þreytu eða ofvirkni. Ég varð að sjálfsögðu himinlifandi og taldi mig vera komin með skothelda afsökun fyrir geðvonskunni sem hafði hrjáð mig í nokkrar vikur.
Ég dreif mig til læknis sem vísaði mér í blóðprufu, allt kom vel út þar og ég get ekki kennt skjaldkirtlinum um geðvonskuna mína og þá dreif hann mig í sónar til að láta mynda hálsinn á mér. Allt kom nokkuð vel út þar en þar sem læknirinn gefst ekki upp á að finna eitthvað að mér þá sendir hann mig í stungu. Ekki á stóra hnútinn heldur þennan pínulitla sem er vinsta megin á hálsinum (hálsinn minn er samt risastór hægra megin og ekkert athugavert við stærðina vinstra megin). Og nú er ég sem sagt að bíða eftir niðurstöðunum.
Ég var ekkert kvíðin fyrir þessu en þar sem allir menntaðir aðilar segja mér að vera ekkert kvíðin, þetta sé að öllum líkindum ekki neitt og algjör óþarfi að hafa áhyggjur en gott samt að láta kíkja á þetta. Og þar sem allir sem eru eitthvað fróðir um þetta eru svona uppteknir af því að segja mér að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af er ég komin á þá skoðun að ég þurfi að hafa áhyggjur af þessu.
Þess vegna lá ég uppí rúmi í gær og hugsaði um allt sem ég er ekki búin að gera en ætlaði mér að gera í lífinu og fór því að gera lista í huganum.
Það sem ég þarf að gera áður en ég dey
1. Fara í ferðalag út fyrir Evrópu.
2. Læra á bretti
Það sem ég er búin að gera er:
1. eignast mann og börn
2. búa í útlöndum
3. mennta mig
4. Eiga einbýlishús og breyttan jeppa
5. læra á skíði, skauta, hjóla ofl.
6. Fara í Disney World, sólarlandaferðir, borgarferðir og margt,margt fleira
7. Skoða Ísland hátt og lágt
8. Sjá eldgos
9. upplifa jarðskjálfta
og svona mætti lengi telja. Svo ég held að þó svo að ég ætti færri ár eftir ólifað en ég upphaflega gerði ráð fyrir þá myndi ég líklega "lifa það af" að deyja frá lífinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2011 | 10:53
Jól og afmæli
Ég á alltaf afmæli einu sinni á ári. Mér finnst frekar leiðinlegt að eiga afmæli, það er samt ekki af því að það er eitthvað slæmt að eiga afmæli. Mér finnst líka gaman að fara í skemmtilegar veislur en það er leiðinlegt að halda veislur og svo er leiðinlegt að sitja uppi með allt dótið sem maður bað ekki um í afmælisgjöf. Stundum væri ég alveg til í að leysa fólk bara út með gjöfunum sínum eftir veisluna. Fólki hlýtur að líka gjafirnar sem það keypti, annað væri bara fáránlegt, til hvers að kaupa gjafir sem manni finnst ljótar (nema náttúrulega að viðkomandi hafa beinlínis valið gjöfina sjálfur).
Er að upplifa mig svolítið hrokafulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2011 | 09:33
Haust
Held ég þjáist af skammdegisþunglyndi í augnablikinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2011 | 15:39
Nettenging
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2011 | 14:03
Eigum við ekki bara að vera vinir
Ég held að strákar fái oftar að heyra þessa setningu heldur en stelpur. Ég man ekki eftir að nokkur strákur hafi sagt eitthvað svona við mig, ef ég hef viljað gera eitthvað meira en það sem vinum er sæmandi þá hafa þeir verið tilbúnir. Ekki að ég hafi reynt það oft, en það kom oft til tals þegar "vinirnir" voru komnir í glas, hvort ekki væri í lagi að blanda saman vináttu og smá kynlífi.
Þeir voru samt ekki ástfangnir af mér, en samt var þetta munurinn á mér og öðrum kk vinum þeirra. Allavega efa ég að flestir af þessum strákum hafi stungið uppá einhverju svona við kk vini sína.
Síðan líka þegar mínir karlkyns vinir eignuðust kærustur, þá höfðu þeir ekki þörf fyrir mig lengur. Það var nóg að sinna öllu "stelpu" tali við kærustuna. Annað tal var um bíla, vélar, veiðar og eitthvað sem ég er líklega ekki skemmtilegasti viðmælandi varðandi.
Ég á samt ágætis karlkyns vini sem ég veit að myndu alltaf reynast mér vel, þeir nenna bara ekki að spjalla við mig og líklega ekki hitt lengur.
Svo niðurstaðan hlýtur að vera að annað hvort er ég frekar leiðinleg frá sjónarhóli karlmanna eða of gordjöss til að hægt sé að eiga mig bara fyrir vin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.8.2011 | 11:05
Vildi óska að ég vildi vera fullur
hef ekkert afkastað í vikunni.
Mig langar ekkert til að fara heim
heldur ekki í neitt geim
því moðast ég áfram í mykjunni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2011 | 14:46
Blogg
Einn vinnufélagi er hættur í vinnunni, ég mun sakna hans.
Ég er alls ekki búin að vera dugleg að hreyfa mig, þarf að fara að taka á því.
Ég er ferlega leiðinleg þessa dagana, þarf að fara að bæta úr því.
Að öðru leyti er lífið bara ágætt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2011 | 13:50
Bjartur í Sumarhúsum
Einu sinni las ég bókina "Sjálfstætt fólk", ég las hana aðallega vegna þess að hún var kosin bók síðustu aldar. Eftir lesturinn fannst mér hún vera vel að titlinum komin sem besta bók aldarinnar. Bjartur er ein besta persónusköpunin sem til er.
Mér finnst ég núna búa í Sumarhúsum og mér finnst það leiðinlegt. Þetta er svolítið eins og með fantasíurnar, þær eru svakalega skemmtilegar og fullkomnar í hugarheimnum en svo standast þær ekki alltaf væntingar þegar þær líta dagsins ljós. Oft eru þær skemmtilegar, stundum ekki.Þetta er svona svipað og með að lesa, maður hefur ekki alltaf þörf fyrir að lifa sig í bókstaflegri merkingu inní bókina.
Við sem þjóð þurfum að hafa ákveðið stolt og láta ekki vaða yfir okkur eða ekki þiggja ölmusu frá stærri þjóðum og enn síður að borga skuldir óreiðumanna líkt og Davíð Oddson benti réttilega á.
En jæja, er farin að vinna og ætla að lesa meira af íslenskum bókmenntum næstu vikurnar. Það er nú hluti af okkar þjóðarstolti að vera svona bókarþjóðm, eins gott að vera hluti af þjóðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2011 | 14:24
Ætla að segja Já 9. apríl
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.3.2011 | 10:21
Þjóðaratkvæðagreiðslur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigrún Þorsteinsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar